Ókunnugt fólk
Horfa á kynningu

Skáldverk

Ókunnugt fólk

eftir Björn Halldórsson

2026 · 272 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

  • „Sagan tekst á við ofurfirringu nútímans á snjallsímaöld en vekur manni von um að skáldsagan sé ennþá form og miðill sem skipti máli og geti hjálpað okkur til að glöggva okkur á samtímanum og takast á við hann.“

    DV · Ágúst Borgþór Sverrisson

Um bókina

Áhrifamikil og nærgöngul saga um brotna fjölskyldu og óuppgerða fortíð þar sem aðalpersónurnar segja söguna hver frá sínum sjónarhóli – líka Danni, skugginn sem ásækir foreldra sína og systkini dag og nótt.

Eftir langa sambúð eiga Vilborg og Elías fátt sameiginlegt annað en þögnina. Yngri sonur þeirra, Funi, er nýfluttur til þeirra aftur eftir vímuefnameðferð, dóttirin Dagbjört upptekin tveggja barna móðir á framabraut. Frumburðurinn Danni er hins vegar fjarverandi og samt nálægur; sár og fyrirferðarmikil minning í lífi þeirra allra.

Sorgin hefur ekki sameinað þau heldur sundrað. Síðan Danni hvarf fyrir tuttugu árum hafa þau gengið hvert sína leið, ófær um að rjúfa þögnina og græða sárin, þar til helgina sem óvænt atvik neyðir þau til að horfast í augu og spegla sig hvert í öðru.

Björn Halldórsson hefur áður sent frá sér smásagnasafnið Smáglæpi og skáldsöguna Stol.

Kynning

Karfan þín

Valmynd