Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Ofan Vatns
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 223 | 3.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 223 | 3.190 kr. |
Um bókina
Í þriðja og síðasta hluta Klingivalstrílógíu danska rithöfundarins Jane Aamund segir frá Jósef, elsta syni Júlíönu Jensen. Jósef er myndarlegur og heillandi ungur maður sem margar konur líta hýru auga. Hann syngur í óperukór Konunglega leikhússins, reynist hafa dulda viðskiptahæfileika og er almennt ungur maður á uppleið.
Júlíana gleðst yfir velgengni hans og í hvert sinn sem hann er með í nýrri óperu eða statisti í leikriti situr hún á sínum stað á svölunum með prógrammið á hnjánum og horfir aðdáunaraugum á son sinn.
Öll fjölskyldan fylgist síðan forviða með frama hans og gjálífi þar til hin unga fröken Weibel frá Lemvig á Jótlandi hringir á dyrabjöllunni á stóru einbýlishúsi í Hellerup.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.