Um bókina
Það er föstudagur og Alex slappar af í símanum áður en hann fer í bekkjarpartý. Skyndilega dúkkar ókunnug stúlka upp í spjallinu og bætir honum við sem vini. Alex hefur ekkert annað að gera og byrjar að spjalla við hana. Þegar hún vill sjá mynd af honum hikar hann í fyrstu – og síðan dynur ógæfan yfir.
Segðu frá Alex! er ein af þremur bókum í seríunni um Alex. Bækurnar eru fyrirbyggjandi lesning sem auðveldar börnum og fullorðnum að eiga erfiðar en nauðsynlegar samræður um karlmennsku, kynferðisbrot, hópþrýsting og afbrot.













