Míkadó

Skáldverk

Míkadó

eftir Gerður Kristný

2026 · 174 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

  • „… frekar magnað portrett af „góðu gömlu tímunum“ þar sem lífið var kannski betra fyrir suma en alls ekki alla, jafnvel þó að þá hefðu einkunnir verið gefnar á skalanum 1-10.“

    RÚV · Gréta Sigríður Einarsdóttir

Um bókina

„Líf mitt var eins og að spila míkadó þar sem hver prjónninn var veiddur á fætur öðrum án þess að hrúgan hryndi.“

 

Fjölskylda ellefu ára stelpu reynir hvað hún getur að liðast ekki í sundur. Dagarnir fara í að sýna heiminum að allt sé í lagi. Á meðan stelpan fetar sig fram hjá gildrum á heimilinu gerast ævintýrin utan þess.

Í skáldsögunni Míkadó segir Gerður Kristný sögu frá Reykjavík níunda áratugarins. Með ísmeygilegri kímni og hnífskörpu innsæi er dregin upp lýsing á heimi sem stundum virðist kæfandi en stundum barmafullur af möguleikum.

Gerður Kristný hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu höfunda landsins. Hún hefur hlotið margs konar viðurkenningar fyrir skrif sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin, tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar.

Karfan þín

Valmynd