Mér er skemmt
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2010 | 227 | 3.100 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2010 | 227 | 3.100 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Um bókina
Einar Kárason hefur sagt frá ótal skringilegum og skemmtilegum karakterum alveg síðan hann hóf höfundarferil sinn. Nú er komið að honum sjálfum. Í nokkrum gullvægum köflum segir hann sögur úr eigin lífi, dramatískar sögur af brogaðri skólagöngu sinni og félagsmálastússi á fullorðinsárum, gráthlægilegar sögur af afskiptum sínum af kvikmyndum, dásamlegar sögur af „jólunum á Hrauninu“, misjafnlega þroskavænlegri sumarvinnu og köttunum sínum fjórum.
Einar opnar hér af fágætri hreinskilni og einlægni dyrnar að lífi sínu, hugmyndum og hugsjónum, og fetar öruggur í fótspor þeirra fjölmörgu rithöfunda sem hafa skrifað dýrmætar bækur, jafnvel sínar bestu, um eigin ævintýri.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir að lengd. Höfundur les.
4 umsagnir um Mér er skemmt
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Einar er afburðasnjall sögumaður, og þekkir lesendur nógu vel til að vita að skemmtigildið þarf ævinlega að hafa í hávegum.“
Hrafn Jökulsson / Viðskiptablaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
,,Frábær bók, frábærar sögur…“
Sigurður G. Tómasson / ÍNN
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Einar er hreinskilinn og einlægur og gefur mikið af sjálfum sér. Það er óhætt að lofa lesendum frábærri skemmtun í þessu heilsteypta verki.“
Kristjón Kormákur Guðjónsson / Menningarpressan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Einar Kárason kann svo sannarlega að segja sögur af fólki … þetta eru slípaðar frásagnir, oft sprenghlægilegar en líka tragískar á stundum.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið