Lúin bein
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2002 | 221 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2002 | 221 | 990 kr. |
Um bókina
Það er stór stund í sögu þjóðarinnar og lífi Jafets Jasonarsonar fornleifafræðings þegar lítið silfurskrín frá miðöldum gægist upp úr jörðu við uppgröft í Þykkvabænum, og í því sköflungur – trúlega úr Þorláki helga. Um það bil sem fornleifafræðingar búast til að flytja hina helgu dóma til Reykjavíkur gerast voveifleg tíðindi og áður en birtir af morgni hefur Jafet Jasonarson ferðast um myrkviði Reykjavíkur, fastur í snöru forhertra glæpamanna sem aldrei láta feng sinn fyrir lítið.
Lúin bein eftir Helga Ingólfsson (2002) er meinfyndin og spennandi saga, sprottin beint úr íslenskum samtíma, full af skrautlegum persónum og neyðarlegum uppákomum. Hún sver sig í ætt við aðrar Reykjavíkursögur Helga Ingólfssonar sem notið hafa mikilla vinsælda – Andsælis á auðnuhjólinu, Blá nótt fram í rauða bítið og Þægir strákar. Andsælis á auðnuhjólinu var kvikmynduð undir nafninu Jóhannes (2009) og skartar Ladda í aðalhlutverkinu.