Ljósberi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 290 | 4.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Innbundin | 2021 | 290 | 4.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Æsispennandi saga um fjögur ungmenni sem lenda í að rannsaka dularfullan dauða lærimeistara síns. Fljótlega blasir við að ekkert af því sem þau þóttust vita um lífið, alheiminn og eðli tilverunnar er eins og þau héldu – eða gat órað fyrir – og vilji þeirra til að sættast við krafta sína og læra að beita þeim mun skipta sköpum í viðureign þeirra við djöflana sem ógna tilveru okkar allra. Bókin hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2021. Ólafur hefur áður sent frá sér vinsælar barnabækur og leikrit um Benedikt búálf en Ljósberi er fyrsta skáldsaga hans fyrir eldri lesendur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 30 mínútur að lengd. Guðmundur Felixson, Kári Viðarsson, Sigríður Láretta Jónsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir lesa.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
3 umsagnir um Ljósberi
embla –
„Bókin er mjög spennandi og heldur lesandanum vel við efnið allt til enda.“
Rósa Harðardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Óhugnanleg blanda af draugagangi, skyggnigáfu og íslenskum nútíma í spennandi og grípandi sögu.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
embla –
„Ljósberi er spennandi og sterk furðusaga sem hefur þann kost að gerast í Reykjavík. Bókin er mikilvæg viðbót í flóru ungmennabókmennta og ég vona að hún nái til sem flestra lesenda.“
Rebekka Sif Stefánsdóttir / Lestrarklefinn