Kyrkjari

Skáldverk

Kyrkjari

eftir Faber og Pedersen

2022 · 464 bls.

Veldu snið

3.390 kr.

Til á lager

Um bókina

Nú er þriðja bókin í þrælspennandi ritröðinni um Juncker og Signe, komin út. Bókin er sjálfstætt framhald Meinsemdar og Kölduslóðar sem komu út 2021.

Í þetta sinn er það röð af hrottalegum morðum á konum sem vekja mikinn óhug í Danmörku. Fórnarlömbin eru skilin eftir á einstaklega niðurlægjandi hátt. Dularfullar vísanir finnast á vettvangi. Hvað er hér á ferðinni? Getur verið að raðmorðingi gangi laus?

Ofbeldisglæpadeild Kaupmannahafnarlögreglunnar, með þau Juncker og Signe í fararbroddi, fær hér stórt og erfitt verkefni í hendurnar. Juncker er hins vegar komin í eigin íbúðarholu eftir skilnaðinn og þar að auki nýbúinn í aðgerð vegna krabbameins, sem hann vill helst að sem fæstir viti um. Signe reynir að lappa upp á samband sitt við launfrekan eiginmanninn eftir framhjáhaldið, en rannsókn málsins tekur sinn toll.

Hjónin Faber og Pedersen hafa slegið í gegn í Danmörku með bókum sínum, enda eru þetta spennandi krimmar sem snerta á vanda nútíma- og alþjóðlegs samfélags, með öllu því sem tilheyrir. Bækurnar eru vel upp byggðar og þéttar, engir lausir endar. Persónusköpunin er sterk, marglaga, krydduð mannlegum breyskleika og húmor.

Karfan þín

Valmynd