Kalmann og fjallið sem svaf
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2023 | 256 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2024 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2024 | - | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2023 | 256 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2024 | App | 2.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2024 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Kalmann Óðinsson situr í haldi FBI og skilur hvorki upp né niður. Dagsferð hans með bandarískri fjölskyldu sinni til Washington D.C. hlaut óvæntan endi og allt í einu liggur heil ósköp á að senda hann aftur heim til Íslands. En þar ríkir engin lognmolla heldur: Morð er framið og virðist tengjast atburðum frá tímum kalda stríðsins. Og hver skyldi best til þess fallinn að rannsaka málið? Korrektomúndó. Það er að sjálfsögðu sjériffinn á Raufarhöfn.
Kalmann og fjallið sem svaf er framhald verðlaunabókarinnar Kalmann sem kom Raufarhöfn á heimskortið og hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Bókin komst á metsölulista Der Spiegel, hlaut Crime Cologne-glæpasagnaverðlaunin, var tilefnd til Specsavers-verðlaunanna sem besta frumraunin og Petrona-verðlaunanna sem besta þýdda norræna glæpasagan.
Joachim B. Schmidt er fæddur árið 1981 í Sviss en hefur búið á Íslandi síðan 2007. Bjarni Jónsson þýddi en hann hlaut Ísnálina 2022 fyrir þýðingu sína á fyrri bókinni.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 47 mínútur að lengd. Hinrik Ólafsson les.
3 umsagnir um Kalmann og fjallið sem svaf
embla –
„Ég mundi gjarnan vilja fá fleiri bækur um Kalmann.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
embla –
„Hann er skemmtilegur höfundur, hann Joachim.“
Egill Helgason / Kiljan
embla –
„Kalmann og fjallið sem svaf er stórskemmtileg bók og þótt hún hverfist að vissu leyti um glæpi er svo margt annað forvitnilegt, athyglisvert og hrífandi í þessum skrifum að varla er hægt að flokka hana í einn flokk.“
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna