Jólin hans Hallgríms
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | 48 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2014 | 48 | 3.190 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2019 | App | 990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Það eru að koma jól. Hallgrímur hlakkar til en hann hefur nóg að gera meðan hann bíður. Mitt í öllu annríkinu verður svo óvæntur atburður – hálfgert kraftaverk.
Jólin hans Hallgríms segir frá aðventunni í Gröf á Höfðaströnd árið 1621 þegar Hallgrímur Pétursson er sjö ára gamall. Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við jólahald heimilisfólksins í Gröf, og þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.
Steinunn Jóhannesdóttir hefur skrifað sögulegar skáldsögur um bæði Hallgrím Pétursson og Guðríði konu hans. Hér kynnir hún Hallgrím í fyrsta sinn fyrir ungum lesendum í hugljúfri sögu sem prýdd er glæsilegum myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um klukkustund að lengd. Höfundur les.
2 umsagnir um Jólin hans Hallgríms
Kristrun Hauksdottir –
„Mér finnst bókin skemmtilegt, raunsæ … Ég komst í jólaskap þegar komið var í seinni hluta hennar.“
Laufey Pálsdóttir, 10 ára / Fréttatíminn
Kristrun Hauksdottir –
„Hér er á ferðinni falleg og vönduð bók sem gefur skemmtilega innsýn í heim sem var og minnir jafnframt á mikilvægi litlu hlutanna og einfaldleikans.“
Silja Björg Huldudóttir / Morgunblaðið