Inga og Míra
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2024 | - | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2024 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2024 | - | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2024 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Skáldsögur Marianne Fredriksson hafa vakið mikla athygli undanfarin ár og hafa tvær af bókum hennar komið út í íslenskri þýðingu. Anna, Hanna og Jóhanna og Símon og Eikurnar. Bækurnar fengu einstaklega góðar viðtökur hjá lesendum þegar þær komu út og Anna, Hanna og Jóhanna seldist upp á skömmum tíma.
Marianne Fredriksson tekst ekki síður vel upp í þessari kraftmiklu sögu, Ingu og Míru. Þetta er áhrifarík og á stundum átakanleg frásögn um vináttu tveggja kvenna, drauma þeirra og sorgir, vonir og vonbrigði.
Inga og Míra eru ólíkar – önnur sænsk en hin frá Chile – en þær verða engu að síður nánar vinkonur. Vináttan krefst einlægni og hreinskilni og því opnast sár sem ekki voru eins gróin og vonir stóðu til. Og fyrr en varir verða þær að horfast í augu við liðna atburði, hvor með sínum hætti.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar