Í skjóli nætur

Barna- og unglingabækur

Í skjóli nætur

eftir John Marsden

2022 · 340 bls.

Veldu snið

Um bókina

Einhvers staðar í óbyggðunum eru Ellie og vinir hennar í felum.

Það hefur verið ráðist inni í landið þeirra. Fjölskyldur þeirra og vinir eru fangar. Veröld þeirra hefur umturnast á einni nóttu. Og nú hefur vinahópurinn tvístrast. Tvö þeirra hafa lent í höndum óvinanna.

Nokkur úr hópnum fara í könnunarleiðangur og finna annan uppreisnarflokk sem er að fara að berjast við óvinina – en hver eru þau og er þeim treystandi?

Bók 2 af 7.

 

John Marsden er ástralskur rithöfundur og kennari. Á morgun – serían var skrifuð með það í huga að auka lesskilning og lestraráhuga og hefur hlotið mörg verðlaun. Serían er í dag vinsælasti ungmennabókaflokkur í Ástralíu.

Karfan þín

Valmynd