[ti_wishlist_products_counter]

[ti_wishlists_addtowishlist]

Hundadagar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 341 3.490 kr.
spinner
Kilja 2016 341 3.490 kr.
spinner
Geisladiskur 2015 Mp3 99 kr.
spinner
Rafbók 2015 990 kr.
spinner

Hundadagar

99 kr.3.490 kr.

Hundadagar
[ti_wishlists_addtowishlist]
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 341 3.490 kr.
spinner
Kilja 2016 341 3.490 kr.
spinner
Geisladiskur 2015 Mp3 99 kr.
spinner
Rafbók 2015 990 kr.
spinner

Um bókina

Hundadagar er leiftrandi skemmtileg saga um stórhug, vandræði, bresti og breyskleika; um menn sem sigla með himinskautum og jafnvel í kringum hnöttinn; um ástina og ástríðurnar; um allt sem er hverfult og kvikt – um þræðina sem tengja saman tímana.

Frásögnin leiðir okkur á vit Jörundar hundadagakonungs, Jóns Steingrímssonar eldklerks og fleira fólks fyrri alda sem lesa má um í heimildum en varð líka efni í þjóðsögur sem lifa enn. Og sagan er ævintýraleg – og ævintýrin söguleg: eldgos á Íslandi kveikti byltingarbál í Frakklandi sem hafði svo aftur víðtæk áhrif annars staðar …

Kannski á fortíðin brýnna erindi við samtíðina en okkur grunar?

Hundadagar eru skáldsaga, meira að segja heimildaskáldsaga þar sem heimildir eru þó notaðar á afar frjálslegan hátt. Aðalheimildir sögunnar eru sjálfsævisögur aðalpersónanna, þeirra Jörgen Jörgensen eða Jörundar Hundadagakóngs og séra Jóns Steingrímssonar, síðan ótal aðrar heimildir sem sumar eru nefndar í sögunni en aðrar ekki. Af þeim sem ekki eru nefndar í sögunni eru fjölmargar greinar Önnu Agnarsdóttur um Jörund hundadagakonung og samskipti Englands og Íslands, Eldhugi Ragnars Arnalds, Mannkynssaga 1789 – 1848 eftir Jón Guðnason, The Age of Revolution eftir Eric Hobsbawm, VI, JÖRGEN JÖRGENSEN eftir Claus Ib Olsen, Fribytteren eftir Kurt Frederiksen og leikritið Eldklerkurinn eftir Pétur Eggerz sem ég bæði sá á sviði og hafði undir höndum eintak af og vísað er í á nokkrum stöðum og tekið orðrétt úr, til dæmis bréf séra Jóns á blaðsíðu 98. Um aðrar heimildar vísast í söguna sjálfa.
Einar Már Guðmundsson

ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.

8 umsagnir um Hundadagar

  1. Kristrún Heiða Hauksdóttir

    „… aldrei hefur maður skynjað jafn glöggt hvað [Jörundur Hundadagakonungur] er ótrúlegur náungi og í bók Einars … Einar Már miðlar þessu efni af mikilli frásagnagleði, fer vítt og breitt og er skemmtilega útúrdúrasamur.“
    Egill Helgason / Eyjan.is

  2. Kristrún Heiða Hauksdóttir

    „Jörundur er Forrest Gump. Hann er allstaðar þar sem eitthvað merkilegt gerist á sínum tíma … Ógurlega skemmtilegt og viðburðaríkt … Allt sem er í þessari bók er skemmtilegt – þetta er eins og konfektkassi.“
    Þorgeir Tryggvason / Kiljan

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 of 5 stars 2 of 5 stars 3 of 5 stars 4 of 5 stars 5 of 5 stars

Tengdar bækur

3.690 kr.4.690 kr.
990 kr.1.990 kr.
1.990 kr.3.990 kr.
Delluferðin
990 kr.3.390 kr.
Karitas
990 kr.3.490 kr.
Samfeðra
990 kr.3.490 kr.
Kvika
990 kr.3.490 kr.
Farangur
2.490 kr.2.890 kr.