HKL ástarsaga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 237 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 237 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
„Allt er lygi nema ástin.“
Vefarinn mikli frá Kasmír
Á rithöfundarferli Péturs Gunnarssonar hefur Halldór Kiljan Laxness reglulega skotið upp kollinum; allt frá því að sögupersónan Andri glímir við skugga skáldsins þar til Pétur sjálfur horfir um öxl á mótunarárin og segir: „… ef einhver var ofurölvi af HKL þá var það ég.“ Og nú er HKL umfjöllunarefnið. Hér er dregin upp forvitnileg mynd af metnaðarfullu skáldi í upphafi ferils síns, ástum hans og lífsátökum. Pétur leitar fanga víða, til dæmis í einkabréfum, minnisbókum, tímarit um og verkum Nóbelsskáldsins, svo að úr verður nýstárleg og heillandi lífssaga.
Pétur Gunnarsson hefur verið ötull þátttakandi í íslensku menningarlífi með skáldskap sínum, þýðingum og sjónvarpsþáttum. Hann hlaut verðskuldaða viðurkenningu fyrir bækur sínar um Þórberg Þórðarson, ÞÞ – Í fátæktarlandi og ÞÞ – Í forheimskunarlandi.
5 umsagnir um HKL ástarsaga
Arnar –
„HKL – Ástarsaga er mjög vel lukkuð og forvitnileg.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Arnar –
„Pétur er svo góður sögumaður og það er svo mikil hlýja í frásögninni.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
Arnar –
„Hún er stórskemmtileg. […] Ég óska hér með eftir framhaldi. Hann er óendanlega heillandi, með öllum sínum brestum og kostum.“
Sverrir Norland / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„Ein skemmtilegasta bók sem ég minnist þess að hafa lesið um íslenskan rithöfund.“
Jón Viðar Jónsson / DV (Um ÞÞ – Í forheimskunarlandi)
Elín Pálsdóttir –
„Sagan rennur eins og reyfari, létt og björt, kröfuharka hennar mild því hugurinn sem raðar brotunum er svo klár, mannskilningurinn svo skír …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið (Um ÞÞ-bækurnar)