Hingað og ekki lengra!
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 137 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 137 | 4.290 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Ef þið hafið aldrei skipulagt glæp og beðið í marga klukkutíma eftir því að foreldrarnir sofni til að geta laumast út og látið til skarar skríða getið þið ábyggilega ekki ímyndað ykkur hvernig tilfinningin er. Það er sko mun erfiðara en að bíða eftir jólunum. Þá hlakkar maður til einhvers. Það er þúsund sinnum verra að bíða eftir einhverju sem maður kvíðir fyrir.
Hingað og ekki lengra! fjallar um Vigdísi Fríðu og vinkonur hennar, þrettán ára stelpur sem láta ekki valta yfir sig. Glæpur kemur sannarlega við sögu en bókin er samt hryllilega fyndin.
Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir hafa áður skrifað saman bækurnar um Dodda. Sú fyrri, Doddi – Bók sannleikans!, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.
Helga Valdís Árnadóttir myndlýsti.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 3 klukkustundir og 4 mínútur að lengd. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir les.
1 umsögn um Hingað og ekki lengra!
embla –
„Höfundum tekst sérlega vel að gera persónur bókarinnar fjölbreyttar og fá ólík sjónarmið til að mætast. Söguþráðurinn er skemmtilegur og vel ígrundaður.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið