Hel

Skáldverk

Hel

eftir Reynir Finndal Grétarsson

2026 · 192 bls.

Veldu snið

7.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Guðrún Ýr Ingimarsdóttir er einstaklega fær rannsóknarlögreglumaður sem hefur ákveðna sérstöðu: hún drepur fólk. Eftir fæðingarorlof snýr hún aftur til vinnu, staðráðin í að lifa venjulegu lífi. Vera móðir. Vinna vinnuna sína. Skilja fortíðina eftir. En fortíðin lætur hana ekki í friði og fljótlega þarf Guðrún á allri sinni seiglu og styrk að halda

Dagbók lögreglu:

Fasteignasali finnst myrtur á skrifstofu sinni í Borgartúni

Allt tiltækt lögreglulið kallað út vegna skotbardaga í Garðabænum

Maður stunginn með hnífi í Hamraborg og annar skotinn í hnakkann í Kringlunni

Hráslagalegur janúardagur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hel er sjálfstætt framhald glæpasögunnar Líf, sem kom út árið 2025 og var tilnefnd til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans.

Karfan þín

Valmynd