Heimanfylgja
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 420 | 5.180 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | - | 1.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 420 | 5.180 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | - | 1.290 kr. |
Um bókina
Hvað gerði Hallgrím Pétursson að stórskáldi? Hver var heimanfylgja hans? Móðir og faðir, fjölskylda, vinir og fjölskrúðugt mannlíf á Hólum í Hjaltadal – allt vaknar þetta hér til lífsins í stórbrotinni náttúru Skagafjarðar.
Frásögnin fylgir drengnum frá fæðingu og til þess er hann heldur af landi brott á unglingsárum. Af alúð og hugkvæmni eru stopular heimildir nýttar um sálmaskáldið og þá hörðu öld sem fóstraði hann. Galdrabrenna, eldsumbrot og Tyrkjarán, valdatogstreita höfðingja og barátta almúgans við óblíða náttúru mynda baksvið atburðanna þegar næm barnssálin tekst á við áföll og sviptingar í eigin lífi – með hjálp einstakrar náðargáfu: skáldskaparins.
Steinunn Jóhannesdóttir hefur rannsakað líf og skáldskap Hallgríms Péturssonar um árabil. Heimanfylgja er önnur skáldsaga hennar; áður hefur hún skrifað um ævintýralegt lífshlaup eiginkonu Hallgríms.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 17 klukkustundir og 35 mínútur að lengd. Steinunn Jóhannesdóttir les.
3 umsagnir um Heimanfylgja
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… mögnuð lýsing á andrúmslofti sautjándu aldar á Íslandi“
Jón Yngvi Jóhannsson / Fréttablaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Söguleg skáldsaga í hæsta gæðaflokki.“
Bryndís Loftsdóttir / Eymundsson
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Merkileg og stórskemmtileg bók.“
Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagafjarðar