Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 464 | 2.375 kr. |
Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson
2.375 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 464 | 2.375 kr. |
Um bókina
Þegar Chas Featherby, aldraður sjómaður í Hull, deyr, bíður sonar hans á Íslandi, Arnar Featherby, óvæntur arfur: tæplega tvö hundruð skópör. Um svipað leyti fá Örn og félagi hans Jón, sem lærði kvikmyndaleikstjórn í Prag en starfar sem bókavörður í Hafnarfirði, langþráð tækifæri upp í hendurnar: vilyrði fyrir styrk frá gömlum skólafélaga, lyfsalanum Alfreð Leó, til að framleiða leikna bíómynd.
Til að ná í föðurarf Arnar ákveða þeir félagar að ferðast saman til Englands – sjóleiðina – og í farangrinum eru drög að kvikmyndahandriti. Atburðarásin sem þá fer af stað er skráð af Jenny Alexson, fyrrum mágkonu Jóns.
Bragi kemur á óvart með hverri bók, enda er stíll hans og frásagnarháttur engu öðru líkur. Hér er á ferðinni kostuleg lýsing á brokkgengu lífi listamanna og ástandi þjóðar.
Bók þessi er óbeint framhald af síðustu skáldsögu hans, Sendiherranum, sem var valin besta skáldsagan árið 2006 af starfsfólki bókaverslana, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson hlaut einnig tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2010.
6 umsagnir um Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þessi bók með langa nafnið er án efa hápunkturinn á ferli sagnaskáldsins Braga Ólafssonar; meistaralega skrifuð og stórskemmtileg skáldsaga.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Nýjasta skáldsaga Braga Ólafssonar er flókið skáldverk og metnaðarfullt. Þar birtast öll höfundareinkenni Braga, hún er launfyndin og spakleg rannsókn á skáldsögunni og lífinu sjálfu.“
Jón Yngvi Jóhannsson / Fréttablaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er ofboðslega stórt, margslungið, djarft og undirfurðulegt verk. … mjög fyndið á köflum. … Bráðsnjöll saga. “
Egill Helgason / Kiljan
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þessi bók Braga er undursamlegt meistaraverk.“
Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Húmorinn vellur sem fyrr af textanum, persónur eru vel skapaðar og aðstæðumar sem þær eru settar inn og samtöl þeirra oft átakanlega vandræðaleg og fyndin. … staðfestir enn ný hversu frábær rithöfundur Bragi Ólafsson er.“
Kristján Hrafn Guðmundsson / DV
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er ansi hreint mögnuð skáldsaga. … Margir þræðir og alveg meistaralega vel fléttuð.“
Þorgerður E. Sigurðardóttir / Kiljan