Handbók fyrir Ofurhetjur – Fimmti hluti: Horfin

Barna- og unglingabækur

Handbók fyrir Ofurhetjur – Fimmti hluti: Horfin

eftir Elias og Agnes Våhlund

2020 · 104 bls.

Veldu snið

3.090 kr.

Til á lager

Um bókina

Handbók fyrir ofurhetjur er bókaröð sem hefur farið eins og stormsveipur um Ísland og hin Norðurlöndin.

Hér er fimmta æsispennandi bókin og upphafið á nýju ævintýri! Aðeins þau sem eru raunverulega sterk þora að sýna veikleika. 

Stórglæpamaðurinn Wolfgang situr á bak við lás og slá í Rósahæð. Það þýðir þó ekki að Lísa og Max geti slakað á. Dag einn gerist dálítið hræðilegt. Börn fara að hverfa um nætur. Eitt af öðru, algjörlega sporlaust. Fólkið í bænum er reitt – af hverju finna Rauða gríman og Villta býflugan ekki börnin? Á sama tíma reynir Lísa að kenna Nikka og Róbert ofurkrafta en það gengur ekki vel. Allt í einu er hún búin að fá alla upp á móti sér. Hverjum getur hún treyst? 

Karfan þín

Valmynd