Gestir
Horfa á kynningu

Skáldverk

Gestir

eftir Hildur Knútsdóttir

2025 · 147 bls.

,,Þótt þessar bækur séu stuttar og fljótlesnar sitja þær ótrúlega lengi í manni. Það er bara á færi mjög flinkra höfunda að setja saman svona stuttan texta og skapa jafn heildstæða sögu og Hildur er alltaf að ná betri og betri tökum á þessu formi. Gestir er spennandi og eftirminnileg saga.““ Steingerður Steinarsdóttir…

Veldu snið

4.290 kr.

Til á lager

Um bókina

„Ég opna Facebook og kíki á hverfissíðuna. Ég þarf ekki að skrolla lengi áður en ég kem að auglýsingunni. Þetta er mynd af kettinum sem liggur við hliðina á mér. Fyrir neðan hana stendur: EDIT ER TÝND!!“

Þegar ókunnug læða tekur að venja komur sínar heim til viðskiptafræðingsins Unnar veit hún nákvæmlega hvernig hún á að leysa vandann. Innan skamms stendur eigandinn, ung og illa tilhöfð kona að nafni Ásta, á tröppunum hjá henni með ferðabúr. Daginn eftir birtist Edit þó aftur og gýtur agnarsmáum kettlingi í rúmi Unnar. Í kjölfarið tekst einlæg vinátta með Unni og Ástu og smám saman hleypa þær hvor annarri inn í sína myrkustu kima, áföll og ástarsambönd. Þegar ógn steðjar að standa þær saman – jafnvel þótt það kosti ósegjanlega glæpi.

Gestir er blóðugur spennutryllir eftir meistara hrollvekjunnar, Hildi Knútsdóttur, sem áður hefur sent frá sér nóvellurnar Myrkrið milli stjarnanna, Urðarhvarf og Möndlu. Hildur hefur jafnframt skrifað fjölda ungmennabóka og hlotið fyrir þær ýmsar viðurkenningar. 

Kynning

Karfan þín

Valmynd