Gallsteinar afa Gissa

Barna- og unglingabækur

Gallsteinar afa Gissa

eftir Kristín Helga Gunnarsdóttir

2019 · 159 bls.

Veldu snið

1.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Torfi og Gríma eiga virkilega leiðinlega fjölskyldu. Mamma þeirra er skipanaglaður harðstjóri með hollustuæði, pabbinn er viðutan vinnusjúklingur og Úlfur er ömurlegt unglingaskrímsli.

Systkinin dreymir um afslappað heimilislíf, gæludýr og gotterí. Getur hinn síglaði sjóari, afi Gissi, látið draumana rætast? Hvað gerist ef Torfi og Gríma eignast óskasteina? Geta óskir
verið hættulegar?

Gallsteinar afa Gissa er yfirnáttúruleg fjölskyldusaga eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem hefur slegið í gegn með Fíusól, Móa hrekkjusvíni og fleiri litríkum persónum. Hún hefur tvívegis hlotið barnabókaverðlaun Reykjavíkur og Fjöruverðlaunin, Bókaverðlaun barnanna fimm sinnum og Sögustein IBBY fyrir feril. Þá var saga hennar Vertu ósýnilegur – Flóttasaga Ishmaels tilnefnd til bæði Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

Karfan þín

Valmynd