Fuglaskoðarinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 190 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 190 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 1.690 kr. |
Um bókina
Þetta er saga um dularfullan dauðdaga ungs manns suður með sjó sem er hugfanginn af fuglum. Við rannsókn málsins kemur í ljós að ekki er allt með felldu í fortíð piltsins.
Fuglaskoðarinn er fyrsta bókin af þremur um líf og starf lögreglukonunnar Lísu og aðstoðarfólks hennar.
Stefán Sturla Sigurjónsson er fæddur 1959, stundaði nám í húsasmíði við Fjölbrautarskólann í Breiðholti, útskrifaðist sem búfræðingur frá Hvanneyri 1979 og er leikari frá Leiklistarskóla Íslands.
Eftir Stefán hafa áður komið út tvær barnabækur, Trjálfur og Mimmli (2000) og Alína, tönnin og töframátturinn (2007). Stefán Sturla hefur verið þáttastjórnandi bæði í útvarpi og sjónvarpi, skrifað leikrit, söngleiki og gerði borðspilið Spurningaspilið Ísland (2002).
Hann hefur leikið og leikstýrt í leikhúsum landsins, kvikmyndum og sjónvarpi. Stefán lék m.a. eitt af aðalhlutverkum í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík og var í leikhópnum Bandamönnum. Stefán býr í Vasa í Finnlandi en starfar nú við listkennslu í fjölbrautaskólanum á Höfn í Hornafirði.