Flökkusaga

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 2.890 kr.
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2016 2.890 kr.

Um bókina

Eftir miklar breytingar í heimalandi Ísoldar og mömmu hennar, neyðast birnurnar til að flýja. Þær leggja í langa ferð í leit að nýjum heimkynnum en mæta óvæntum erfiðleikum þegar þær
loksins nema land.

Munu brúnu birnirnir taka hvítu birnurnar í sátt?

Flökkusaga er hugljúf bók sem lætur engan ósnortin. Sagan af birnunum þreifar á mörgum málum sem við þekkjum vel úr samtíma okkar á einstaklega litríkan og einlægan máta. Flökkusaga fjallar um mæðgur af ísbjarnakyni sem neyðast til að leggja land undir fót og þurfa í framhaldi að takast á við krefjandi verkefni á nýjum slóðum – Að falla í hópinn.

Hér er á ferðinni spennandi bók sem býr yfir fallegum boðskap sem á erindi við lesendur á öllum aldri. Sagan sýnir okkur á hjartnæman hátt hversu mikilvægt það er að eiga góða að til að takast á við breytingar, fordóma, söknuð og það að fóta sig í nýju umhverfi.

Flökkusaga er fyrsta bók Láru Garðarsdóttur sem hún skrifar og myndskreytir eins síns liðs en Lára stendur einnig sjálf að útgáfu bókarinnar. Lára er teiknari og kvikari að atvinnu og hefur unnið við teiknimyndagerð og myndskreytt fjölda bóka. Lára býr í Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum og íslensku fjárhundunum Línu og Míu sem veittu mikla aðstoð við gerð Flökkusögu.

Tengdar bækur

4.490 kr.
4.690 kr.
2.490 kr.
saga_af_svartri_geit
3.890 kr.
3.690 kr.
4.090 kr.
1.790 kr.
3.590 kr.
3.290 kr.

INNskráning

Nýskráning