Fjársjóður í mýrinni – Mýrarbók #3
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 97 | 5.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 97 | 5.290 kr. |
Um bókina
Hvaða fjársjóður er falinn í mýrinni?Og af hverju er svartklædda fólkinu á stóra bílnum svona í mun um að finna hann?
Fjársjóður í mýrinni er þriðja bókin í röðinni um krakkana í Mýrarsveit þau Stellu, Ella og Bellu sem búa með pabba sínum í gráa húsinu, og Móses sem býr með mæðrum sínum þremur í bláa húsinu. Börnin ganga í Mýrarskóla sem er stýrt af hinni orðheppnu Ásu Egg og í mýrinni býr ófreskja sem Móses þykir afar vænt um. Einn daginn banka uppá óprúttnir gestir á stórum bíl með ískyggileg plön um framtíð mýrarinnar í farteskinu.
Sigrún Eldjárn er einn ástsælasti barnabókahöfundur þjóðarinnar. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir bækur sínar sem eru fullar af fjöri, æsispennandi og ríkulega myndskreyttar. Fyrsta bókin í sagnaflokknum um börnin í Mýrarsveit, Ófreskjan í mýrinni, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og önnur bókin, Fjaðrafok í mýrinni, var tilnefnd til barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Fjársjóður í mýrinni er skemmtileg og spennandi saga sem tekur á mikilvægum málefnum sem varða umhverfisvernd og börn á flótta.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar