Fjaðrafok í mýrinni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 95 | 4.990 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2023 | 95 | 4.990 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 2.990 kr. |
Um bókina
Það er eitthvað undarlegt að gerast langt úti í bullandi og sullandi mýrinni. Hvaða rauðu slettur eru þarna úti um allt? Er það tómatsósa? Jarðaberjasulta? Eða eru þetta kannski BLÓÐSLETTUR?
Í þessari bók hittum við Móses í bláa húsinu og þríburana Stellu, Ella og Bellu í gráa húsinu. Auk þess sjálfa ófreskjuna í mýrinni sem kúrir ein í holu sinni og gæðir sér á kanelsnúðum. Við rekumst á grunsamlegan bókabílstjóra, þríburamömmu á kafi í leynilegum verkefnum og hugsanlega komumst við að því hvernig hægt er að læra að skilja fuglamál!
Sigrún Eldjárn hefur skrifað fjölda bóka sem íslensk börn gleypa í sig enda eru sögurnar fyndnar og skemmtilegar, æsispennandi og ríkulega myndskreyttar. Sigrún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og fyrri bókin um fólkið í Mýrarsveitinni, Ófreskjan í mýrinni, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2023.
1 umsögn um Fjaðrafok í mýrinni
embla –
„Sigrún færir okkur hér eina veisluna enn, hún er sannarlega gersemi þegar kemur að því að skapa barnabækur.“
Kristín Heiða Kristinsdóttir / Morgunblaðið