Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Fíasól og litla ljónaránið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 32 | 2.580 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2010 | 32 | 2.580 kr. |
Um bókina
Það er ekki að spyrja að flækjuhausnum Fíusól, hún lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Í nýjustu bókinni, Fíasól og litla ljónaránið, segir af ótrúlegri atburðarrás – og litlum apaskottum, búlgörskum farandsöngvurum, úrræðagóðri mömmu og velheppnaðri ferð í skemmtigarð og skriðdýrahús.
Fíasól og litla ljónaránið er sjötta bókin um þetta fjöruga stelpuskott en hressilegar sögur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur og bráðfyndnar myndir Halldórs Baldurssonar gera Fíusól að eftirlæti íslenskra bókaorma ár eftir ár.
Bókin hentar lesendum á frá fjögurra ára aldri og er skreytt fjölda skemmtilegra litmynda.
2 umsagnir um Fíasól og litla ljónaránið
Bjarni Guðmarsson –
„Lífleg og með skrautlegum og grípandi teikningum. Bráðskemmtileg aflestrar.“
Harpa Mjöll Reynisdóttir, 14 ára / DV
Bjarni Guðmarsson –
„Hér er sagt frá ferðalagi Fíusólar með stórfjölskyldunni til Kaupmannahafnar. Þar lendir hópurinn í ýmiss konar ævintýrum sem er skemmtilega lýst að vanda hjá Kristínu Helgu. … Myndirnar gefa bæði sögunni og bókinni í heild mikið. … Apaskottinu, dyraverðinum og búlgörsku farandsöngvurunum er skemmtilega lýst í bókinni en teikningarnar bæta um betur.“
Birta Björnsdóttir / Morgunblaðið