Ég kom til að gráta

Skáldverk

Ég kom til að gráta

eftir Þorgrímur Þráinsson

2026 · 233 bls.

Veldu snið

6.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brest­ir í hjónabandi? Eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig? Við erum öll að glíma við eitthvað, leita jafnvægis, eins og Jónatan sem fer á Snæfellsnes til að biðjast fyrirgefningar og skrifa sig frá erfiðum æskuárum.

Fyrir vestan kynnist hann áhugaverðu fólki sem hristir hressilega upp í honum og löngu týndar tilfinningar blossa upp að nýju.

Þarf hugrekki til að vera ástfanginn af lífinu?

Ó þið sem hafið lokast inni í sjálfbyggðu völundarhúsi.
Eruð þið ekki lángþreytt
á að rekast aftur og aftur
á sama vegginn?
Snúið ykkur við
sjá dyrnar eru hérnamegin
Úti er hábjartur dagur.
– Dagur Sigurðarson

Þorgrímur Þráinsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóð­ar­innar sem hefur á löngum ferli snert lesendur með bókum sínum. Ég kom til að gráta er áhrifamikil saga, skrifuð af einstöku næmi, einlægni og hárfínum húmor.

Karfan þín

Valmynd