Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 304 | 8.290 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 4.690 kr. |
Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu
4.690 kr. – 8.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 304 | 8.290 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 4.690 kr. |
Um bókina
Guðný Halldórsdóttir er afkastamesta kvikmyndagerðarkona þjóðarinnar. Eftir hana liggja ástsælar gamanmyndir eins og Stella í orlofi og Karlakórinn Hekla en einnig dramatískar myndir á borð við Ungfrúna góðu og Húsið og Veðramót, auk fjölda heimildarmynda og sjónvarpsþátta.
Sögukonan Duna hefur orðið í þessari bók. Hér segir frá geðstirðum þýskum kvikmynda-leikstjóra í of lítilli sundskýlu og femínískum tilraunum með kvikmyndamiðilinn á Langjökli. Metnaðarfullar vinkonur stofna Kvikmyndafélagið Umba, ráðningarsamningur er undir-ritaður aftan á leikaramynd af Brigitte Bardot og sænskur tökumaður ráfar um Flatey á Breiðafirði í leit að hverfispöbbnum. Hápólitísk áramótaskaup hrista rækilega upp í samfélagi sem er tregt til að horfast í augu við óþægilegan sannleika – en getur ekki annað en hlegið.
Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu er eins og bíómynd eftir Guðnýju Halldórsdóttur: sprenghlægileg en dagsönn og heiðarleg. Kristín Svava Tómasdóttir er sagnfræðingur og rithöfundur. Guðrún Elsa Bragadóttir er lektor við kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands.
3 umsagnir um Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu
Fanney Benjaminsdottir –
„Sagan af Dunu og kvikmyndum hennar er afrekssaga og bráðfyndin að auki!“
Bergur Ebbi Benediktsson
Fanney Benjaminsdottir –
„Bráðskemmtileg bók sem vekur upp hlátur með snjöllum húmor og ómótstæðilegum sögum. Algjör perla fyrir lesendur!“
Ari Eldjárn
Fanney Benjaminsdottir –
„… skemmtileg bók … góð saga kvikmyndagerðar á bernskuskeiði”
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið