Dauðinn og eyjan

Skáldverk

Dauðinn og eyjan

eftir Guillaume Musso

2026 · 210 bls.

Veldu snið

4.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Árið 1999 tilkynnir rithöfundurinn Nathan Fawles, sem hefur öðlast virðingarsess í bókmenntaheiminum fyrir skáldsögur sínar, að hann sé hættur að skrifa. Hann dregur sig í hlé á eyjunni Beaumont, náttúruperlu undan ströndum Miðjarðarhafsins.

Haustið 2018 kemur Mathilde Monney, ung og metnaðarfull svissnesk blaðakona, til eyjunnar, staðráðin í að ná viðtali við manninn sem heldur áfram að heilla lesendur tveimur áratugum eftir að hann lét af ritstörfum.

En sama dag finnst lík konu á ströndinni.

Yfirvöld loka eyjunni þegar í stað svo enginn komist í burtu þaðan. Smám saman kemur í ljós að það eru ekki ritstörfin sem Mathilde Monney vill ræða við höfundinn, heldur ógnvænleg leyndarmál fortíðar sem einhver virðist reiðubúinn að drepa fyrir.

Karfan þín

Valmynd