Dauðinn er bara myrkur

Skáldverk

Dauðinn er bara myrkur

eftir Jón Atli Jónasson

2026 · 258 bls.

Veldu snið

4.290 kr.

Rafbók afhent strax eftir greiðslu

  • „Plottið er sannfærandi, ófyrirsjáanlegt og lokasenan með óvæntum snúningi. … persónusköpun höfundar er bæði glögg og sterk.“

    Fríða Björk Ingvarsdóttir, bókmenntafræðingur

Um bókina

Odd Strange hefst við í gömlu hjólhýsi í nágrenni Malaga og hefur lifibrauð sitt af einkaspæjarastörfum. Hann á sér óvenjulega sögu: ólst upp í Reykjavík hjá afar sérkennilegum foreldrum, var júdókappi og starfaði um tíma í lögreglunni í Osló.

Dag einn bankar ung kona upp á hjá Odd og biður hann að finna týnda vinkonu sína. Leitin að henni rifjar upp fyrir honum hryllilegt mál sem snerist um norskan fjöldamorðingja sem aldrei náðist, rannsókn sem varð Odd gríðarlega dýrkeypt. Getur verið að sami morðingi sé aftur kominn á kreik?

Magnað andrúmsloft einkennir þessa ískyggilegu og óhefðbundnu glæpasögu sem grípur lesandann fantatökum strax á fyrstu blaðsíðu.

Jón Atli Jónasson er margverðlaunaður fyrir leikverk sín, sjónvarps- og kvikmyndahandrit. Nýlegar glæpasögur hans, Brotin og Eitur, fengu báðar afbragðsdóma.

Karfan þín

Valmynd