Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Brúður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 71 | 2.325 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2010 | 71 | 2.325 kr. |
Um bókina
Sérkennileg og heillandi bók um brúðkaup. Alls konar fólk ratar upp að altarinu og reynir að leika hlutverk sitt af kostgæfni en ýmislegt fer öðruvísi en ætlað er. Þessi bók er skyldueign einhleypra, kaldhæðinna, hamingjusamlega giftra og, jú, rómantíkera.
Sigurbjörg Þrastardóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir skáldskap sinn og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir síðustu bók sína, Blysfarir.
Bjargey Ólafsdóttir myndskreytti.
7 umsagnir um Brúður
Bjarni Guðmarsson –
„Sigurbjörg er glögg, fyndin og kaldhæðin en umfram allt lúmskt rómantísk. Sum ljóðanna eru afskaplega fögur og mynda ógleymanlegar líkingar við það tómarúm í sálinni sem við leitumst við að fylla með pompi og prakt … það er nærri því ómögulegt að mæta í brúðkaup án þess að skella ekki upp úr eftir lestur þessarar bókar.“
Kristjana Guðbrandsdóttir / DV
Bjarni Guðmarsson –
„Skemmtileg bók.“
Linda Blöndal / Síðdegisútvarpið
Bjarni Guðmarsson –
„Það er merkilega hógvær stemning í þessum ljóðum, þrátt fyrir að þau fjalli um þennan hápunkt í lífi konunnar (og jafnvel mannsins). Það þýðir þó ekki að ljóðin séu máttlaus eða linkuleg á neinn hátt, þvert á móti þá er heimur brúðanna ákaflega heillandi og ánægjulega ófyrirsjáanlegur. Myndir Bjargeyjar Ólafsdóttur eiga svo sinn þátt í því að gefa bókinni heildstætt yfirbragð.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
Bjarni Guðmarsson –
„… Vel smíðuð og marglaga ljóð.“
Magnús Örn Sigurðsson / Skorningar, RÚV
Bjarni Guðmarsson –
„Sigurbjörg leikur sér af mikilli lipurð með myndmál, orð og rím og oft skjótast inn óvæntar líkingar sem setja ljóðið í splunkunýtt samhengi.“
Vilborg Dagbjartsdóttir / Viðskiptablaðið
Bjarni Guðmarsson –
„Sigurbjörg Þrastardóttir hefur aldrei gert betur … ástarljóðabók á röngunni …“
Eiríkur Örn Norðdahl / Spássían
Bjarni Guðmarsson –
„Brúður er bæði frumleg og skemmtileg ljóðabók og hún er líka eiguleg í fallegu broti. Hún er uppáhaldsbrúðargjöfin næstu árin. Teikningar Bjargeyjar Ólafsdóttur eru táknrænar og gefa heildarmynd bókarinnar aukna vídd.“
Steinunn Inga Óttarsdóttir / Morgunblaðið