Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Brestir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 494 | 2.290 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 494 | 2.290 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Brestir er áhrifamikil skáldsaga um lítinn bæ með stóra drauma – og hversu dýru verði þeir eru keyptir.
Þetta er saga um órjúfanlega vináttu tveggja unglingsstelpna, um sautján ára stráka sem spila íshokkí með heiður smábæjar á herðum sér, um ástríðu og fjölskyldubönd, liðsanda – en líka hvernig heilt samfélag getur snúið blinda auganu að því þegar áfall ríður yfir. Og hversu langt við erum tilbúin að ganga fyrir börnin okkar í nafni kælrleikans.
Fredrick Backman er einn vinsælasti höfundur Norðurlanda nú um stundir en hann sló eftirminnilega í gegn með Maður sem heitir Ove. Brestir fór rakleitt í fimmta sæti metsölulista New York Times þegar hún kom út þar í landi vorið 2017 en bækur Backmans hafa selt í yfir 6 milljónum eintaka.