Blóðmjólk

Skáldverk

Blóðmjólk

eftir Ragnheiður Jónsdóttir

2023 · 204 bls.

Veldu snið

4.090 kr.

Til á lager

Um bókina

Í Blóðmjólk sogast lesandinn inn í vinkvennahóp sem verður fyrir miklu áfalli þegar ein þeirra deyr með hræðilegum hætti. Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna þannig að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum. Hvað gerðist eiginlega? Og ef það var framinn glæpur, hver er hinn seki? Þessi skvísukrimmi fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn.
Blóðmjólk er fyrsta bók verðlaunahafans Ragnheiðar Jónsdóttur. Svartfuglinn er glæpasagnaverðlaun sem Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson standa að ásamt Veröld. Hér er á ferð spennandi höfundur sem mikils má vænta af í framtíðinni!„Með Blóðmjólk kveður sér hljóðs afar athyglisverður rithöfundur sem eykur enn á fjölbreytnina í íslenskri glæpasagnaflóru með sannkölluðum skvísukrimma.”-Úr umsögn dómnefndar um Svartfuglinn

Karfan þín

Valmynd