Blóðengill
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 363 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 1.490 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 363 | 3.390 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 1.490 kr. |
Um bókina
Á frosthörðum vetrardegi hringir kornung stúlka í Neyðarlínuna og tilkynnir að móðir hennar sé látin. Þegar lögreglan kemur á staðinn er þar ekkert að finna nema blóðbletti.
Rannsóknarlögreglukonan Hilma er kölluð á staðinn og hefst þá æsilegt kapphlaup við tímann um að finna stúlkuna og móður hennar sem leiðir Hilmu og félaga hennar á óvæntar slóðir og inn í myrkustu kima mannskepnunnar.
Hilma – fyrsta bók Óskars Guðmundssonar – fékk frábærar viðtökur og verðskuldaða athygli. Hún hlaut Blóðdropann árið 2016 sem besta glæpasagan og var tilnefnd til Glerlykilsins sem besta glæpasaga á Norðurlöndum. Þá hlaut hún einnig Tindabikkjuna sem besta glæpasaga ársins sem Glæpafélag Vestfjarða veitir.
Blóðengill sýnir svo ekki verður um villst að Óskar Guðmundsson hefur skipað sér í fremstu röð íslenskra glæpasagnahöfunda.
2 umsagnir um Blóðengill
Elín Pálsdóttir –
„Hilma er með minnisstæðari karakterum sem íslenskir spennuhöfundar hafa galdrað fram á liðnum árum.“
Kristjón Kormákur Guðjónsson / pressan.is (um Hilmu)
Elín Pálsdóttir –
„Hilma er flottasta persóna sem ég hef lengi séð í íslenskum spennubókum.“
Hrafn Jökulsson (um Hilmu)