Ballið á Bessastöðum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 83 | 1.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2009 | CD | 1.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2007 | 83 | 1.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2009 | CD | 1.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Ballið á Bessastöðum er stórsniðug saga í máli og myndum um forseta og þrjá forsetaritara, gröfukarla og hjólabrettastelpu, hundrað ára gamla konu með ýlustrá, krakkahóp sem lendir í ógöngum við Tjörnina og konu norður í Mývatnssveit sem veit ótrúlega mikið um ský. Ímyndaðu þér ball á sjálfum Bessastöðum með öllu þessu fólki og fjölmörgum til viðbótar!
Gerður Kristný hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir skrif sín, meðal annars fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni Litrófs í Sjónvarpinu árið 1992, Bókaverðlaun barnanna árið 2003 fyrir Mörtu Smörtu, Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2004 fyrir skáldsöguna Bátur með segli og allt og Blaðamannaverðlaun Íslands 2005 fyrir Myndina af pabba – Sögu Thelmu.
Halldór Baldursson er landsþekktur fyrir skopmyndir sínar og hann hefur myndskreytt fjölda barnabóka. Fyrir bókina Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prinsinum hennar hlaut Halldór Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2006.
ATH. Tvær gerðir hljóðbóka eru í boði fyrir þessa vöru. Hljóðbókin er til á geisladiski (CD eða Mp3) sem afhendist í pósti eða úr verslun en einnig er hægt að fá hljóðbók sem er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á beint í gegnum app Forlagsins eða vafra (Hljóðbók – App). Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 66 mínútur að lengd. Höfundur les.
4 umsagnir um Ballið á Bessastöðum
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Sagan er ærslafull og rík af ævintýrum … Ballið á Bessastöðum er skemmtileg lesning, sem vel er hægt að mæla með fyrir hressa byrjendur í lestri.“
Hildur Heimisdóttir / Fréttablaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„… frumleg og oft mjög skemmtileg … verkið óvenjulegt … aðalpersónan er fullorðinn karlmaður í þjóðfélagslegri valdastöðu.“
Björn Þór Vilhjálmsson / Morgunblaðið
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Gaman þegar maður sér barnabækur sem höfða bæði til foreldra og barna … Ótrúlega skemmtilegar myndir eftir Halldór Baldursson … Það er gott grín í þessari bók.“
Svanhildur Hólm / Ísland í dag, Stöð 2
Nanna Rögnvaldardóttir –
„Þetta er ógeðslega skemmtileg bók með brjáluðum myndum eftir Halldór Baldursson.“
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is