Augað
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 157 | 890 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2016 | 157 | 890 kr. |
Um bókina
Hún heitir Hrefna Esmeralda, er fjórtán ára og gengur í Hagaskóla. Venjulegur íslenskur unglingur að öðru leyti en því að hún er hreinræktaður indíáni, fædd í Mexíkó, langminnst í bekknum, með þykka svarta fléttu niður á rass og samvaxnar augnabrúnir.
Ævintýrin elta Hrefnu á röndum og nú lendir hún í æsilegri atburðarás á Kanaríeyjum. Hún kemst í tæri við alræmdustu glæpaklíku Evrópu sem meira að segja teygir anga sína til mexíkósku mafíunnar en alvöru pabbi Hrefnu var einmitt að vinna fyrir hana.
Hvað er gert við fjórtán ára stelpur sem er rænt? Hverslags fólk getur hugsað sér að selja lítil börn? Hrefna og vinir hennar, Kjartan og Kristín, lenda í honum kröppum og spennan stigmagnast fram á síðustu blaðsíðu.
Þetta er önnur bók Hallveigar Thorlacius um ævintýri Hrefnu en sú fyrri heitir Martröð.