Um bókina
Ljóðabók eftir Sylviu Plath. Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir útlagði á íslensku.
155 bls.
Ariel eftir Sylviu Plath á 60 ára útgáfuafmæli í ár en bókin kom fyrst út árið 1965, tveimur árum eftir að hún lést aðeins þrítug að aldri. Sylvia er ein allra þekktasta skáldkona 20. aldarinnar. Bókin er tímamótaverk í menningarsögunni, þar sem Sylvía skoðar þemu eins og sjálfsmynd, mannlegt ástand og náttúruna. Líf hennar og dauðdagi hefur hlotið goðsagnakenndan blæ mikið til vegna þessarar kraftmiklu ljóðabókar.













