(6) Harry Potter og blendingsprinsinn – myndskreytt

Barna- og unglingabækur

(6) Harry Potter og blendingsprinsinn – myndskreytt

eftir J. K. Rowling

2026 · 422 bls.

Veldu snið

11.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Stórglæsileg myndskreytt útgáfa af sjöttu bókinni í ritröðinni um Harry Potter, stútfull af töfrum úr pensli Levi Pinfold.

Þarna sveif það uppi á himninum fyrir ofan skólann; skærgræn hauskúpan með höggormstungunni, merki dráparanna sem þeir skildu eftir sig þar sem þeir höfðu komið  þegar þeir höfðu myrt

Þegar Dumbledore kemur á Runnaflöt eitt sumarkvöldið til að sækja Harry Potter er hönd hans svört og skrælnuð en hann segir ekki af hverju.

Leyndarmál og tortryggni breiðast út um galdraheiminn og Hogwartskóli sjálfur er ekki öruggur. Harry er sannfærður um að Malfoy sé með myrkratáknið: það er drápari á meðal þeirra. Harry þarf á kröftugum göldrum og sönnum vinum að halda þegar hann kannar myrkustu leyndarmál Voldemorts og Dumbledore undirbýr hann undir að mæta örlögum sínum.

Karfan þín

Valmynd