
- Mjúk spjöld
Frelsisbjarmar. Hryðjuverkastríð, efnahagshrun og endalok heimsveldis
Valur Gunnarsson
6.290 kr.

Forlagshöfundur
11 bækur
Valur Gunnarsson fæddist þann 26. ágúst í Reykjavík og ólst upp í Noregi, í Bretlandi og á Íslandi, auk þess sem hann eyddi sumrum sínum á unglingsárum í Sadí-Arabíu og Kína. Hann útskrifaðist með MA gráðu í ritlist frá hinum virta Queen‘s University í Belfast árið 2003 og tók þá þátt í stofnun blaðsins Reykjavik Grapevine.
Valur hefur skrifað greinar í flest blöð á Íslandi og meðal annars starfað hjá Fréttablaðinu, Fréttatímanum og DV. Þá var hann fréttaritari Associated Press og The Guardian í kringum hrun.
Hann hefur einnig gefið út þrjár plötur, Reykjavík er köld: Leonard Cohen á íslensku, Seljum allt með hljómsveitinni Ríkið og Vodka Songs, saminni í Rússlandi ásamt Gímaldni. Hann hefur gefið út ljóðabókina A Fool for Believing sem vann nýliðaverðlaun á ljóðaráðstefnu í Washington DC, og tók þátt í gerð ljóðabókarinnar Iceland: Red, Green and Blue sem kom út í Finnlandi.
Fyrsta skáldsaga Vals, Konungur norðursins, kom út árið 2007 og sú næsta, Síðasti elskhuginn, árið 2013. Hann er nú að klára MA nám í sagnfræði við Háskóla Íslands þar sem hann fæst við rannsóknir á óreiðukenningunni og hvernig veröldin hefði getað þróast ef atburðir hefðu orðið öðruvísi.
Skáldsaga hans, Örninn og fálkinn, fjallar um hvað hefði getað gerst ef Þjóðverjar hefðu hernumið Ísland á undan Bretum árið 1940.
Sýnir 1–11 af 11 bókum
Undir 7.000 kr.
Valur Gunnarsson
6.290 kr.

Valur Gunnarsson
4.990 kr.

Valur Gunnarsson
5.890 kr.

Valur Gunnarsson
4.490 kr.

Valur Gunnarsson
3.690 kr.

Valur Gunnarsson
3.390 kr.

Valur Gunnarsson
3.890 kr.

Valur Gunnarsson
frá 1.490 kr.

Valur Gunnarsson
frá 990 kr.

Valur Gunnarsson
frá 1.390 kr.

Valur Gunnarsson
1.650 kr.