Guðrún Inga Ragnarsdóttir

Forlagshöfundur

1 bók

Guðrún Inga Ragnarsdóttir

Guðrún Inga Ragnarsdóttir (1983) er með BA-próf í íslensku og meistaragráðu í ritlist. Fyrsta skáldsaga hennar, Plan B, kom út árið 2020 og hlaut góðar viðtökur lesenda. Þar segir af afkastamiklu skáldi, Gyðu, sem hefur þó aldrei komið út á prenti. Í bókinni vinnur Gyða að stórri skáldsögu sem er byggð á skrautlegu fólki sem hún vann með í heimaþjónustu Kaupmannahafnar. Til að halda sér í formi skrifar hún um sitt eigið líf, Plan B.

Guðrún Inga er ein af sjö skáldkonum sem mynda hópinn Skóginn sem sendi frá sér ljóðverkið Ég erfði dimman skóg árið 2015. Ljóð og smásögur eftir Guðrúnu Ingu hafa einnig birst í tímaritum og í Smásögum heimsins: Norður-Ameríku.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.5.000 kr.+

Sýnir 1–1 af 1 bókum

Undir 5.000 kr.
Plan B – Guðrún Inga Ragnarsdóttir
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Plan B

Guðrún Inga Ragnarsdóttir

frá 990 kr.

Karfan þín

Valmynd