Brynhildur Þórarinsdóttir

Forlagshöfundur

15 bækur

Brynhildur Þórarinsdóttir

Brynhildur Þórarinsdóttir er fædd árið 1970 og er afkastamikill og margverðlaunaður barnabókahöfundur. Drjúgur hluti verka hennar eru endursagnir á Íslendingasögunum og hlaut hún meðal annars Norrænu barnabókaverðlaunin 2007 fyrir endursagnir sínar á Njálu, Eglu og Laxdælu.

Brynhildur heldur úti vefnum Íslendingasögur.is fyrir börn og hefur einnig sent frá sér skólaútgáfur af Íslendingasögunum á íslensku og ensku. Af skáldsögum hennar má nefna Leyndardóm ljónsins, en fyrir hana hlaut hún Íslensku barnabókaverðlaunin 2004, og Gulbrand Snata og nammisjúku njósnarana sem var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2018.

Auk þess að sinna skrifum, hefur Brynhildur verið mjög virk á barnabókmenntasenunni. Hún hefur verið formaður SÍUNG og er í forsvari fyrir Barnabókasetur, sem er rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri. Þá var hún annar af ritstjórum greinasafnsins Í Guðrúnarhúsi (2005) sem fjallar um verk Guðrúnar Helgadóttur. Hún ritstýrði einnig Tímariti Máls og menningar um skeið.

Brynhildur býr og starfar á Akureyri. Hún gegnir stöðu dósents í íslensku við Kennaradeild Háskólans á Akureyri og var bæjarlistamaður Akureyrar 2006–2007.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.7.000 kr.+

Sýnir 1–15 af 15 bókum

Undir 7.000 kr.
Silfurgengið – Brynhildur Þórarinsdóttir
  • Innbundin
  • Rafbók

Silfurgengið

Brynhildur Þórarinsdóttir

frá 3.290 kr.

Gásagátan – Brynhildur Þórarinsdóttir
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Gásagátan

Brynhildur Þórarinsdóttir

frá 1.490 kr.

Í Guðrúnarhúsi – Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Ármann Jakobsson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Silja Aðalsteinsdóttir
  • Mjúk spjöld

Í Guðrúnarhúsi

Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Ármann Jakobsson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Silja Aðalsteinsdóttir

2.545 kr.

Karfan þín

Valmynd