
Tími nornarinnar runninn upp á Spáni
Spennusaga Árna Þórarinssonar, Tími nornarinnar, er nýkomin út á Spáni og ber þar titilinn El tiempo de la Bruja. Bókin verður kynnt á víðfrægri bókakaupstefnu í Madrid um aðra helgi, la Feria del Libro de Madrid, en þar verða Norðurlöndin í brennidepli að þessu sinni. Hátíð þessi er geysivinsæl, þangað mæta allir helstu bókaspekúlantar Spánar…













