Konur í Póllandi

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Útgáfurétturinn að skáldsögu Steinars Braga, Konum, hefur verið seldur til pólska forlagsins Krytyka Polityczna. Íslenskar bækur eru ekki algeng söluvara þar í landi þó þess þekkist dæmi. Bók Steinars vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2008 og var meðal söluhæstu bóka síðasta árs. Bókin mun koma út í Frakklandi, Svíþjóð og Þýskalandi á næstu misserum og kvikmyndaréttur hennar hefur þegar verið seldur til ZikZak kvikmynda.

Konur er fimmta skáldsaga Steinars Braga sem einnig er þekktur fyrir ljóðabækur sínar.  Sagan segir frá ungri íslenskri listakonu sem snýr heim til Íslands eftir nokkurra ára dvöl í Bandaríkjunum og reynir að raða saman brotunum í lífi sínu. Lánið virðist leika við hana þegar bankamaður, einn íslensku útrásarvíkinganna, býður henni af örlæti að dvelja endurgjaldslaust í glæsilegri þakíbúð í háhýsi við Sæbraut meðan hún kemur sér fyrir. En smám saman fær hún á tilfinninguna að verið sé að leiða hana í gildru …

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd