Um bókina
Ógnarástand ríkir í fjallaþorpi í frönsku Ölpunum. Úti um allar sveitir er sauðfé drepið á skelfilegan hátt. Þegar kona úr þorpinu verður fórnarlamb, kemst á kreik orðrómur um að einsetumaður í fjallinu breytist í varúlf á nóttunni. Eina leiðin til þess að ráða bug á varúlfi er að spretta upp á honum kviðnum, frá hálsi niður að eistum. Eftir það er of seint að gráta mistök sín. Adamsberg lögreglufulltrúi er hundeltur af morðkvendi í höfuðborginni og heldur út í sveit til að kveðja niður þjóðsöguna. Og hitta aftur kærustuna sína.













