Valdís: öll þessi þögn

Skáldverk

Valdís: öll þessi þögn

Helga Skúla

Veldu snið

4.090 kr.

Til á lager

Um bókina

Valdís hefur búið á Spáni í þrjú ár þegar hún snýr heim í Borgarnes í sumarafleysingar hjá lögreglunni. Hún ætlar að nota sumarið til að vera með fjölskyldu og vinum, hlaupa um kunnuglegar slóðir og ganga frá málum sem hún hefur lengi forðast.

En þegar hún rekst á gögn um Jónu Maríu, sautján ára stúlku sem fannst látin vorið 1976, fer hún að spyrja spurninga sem sumir í bænum hefðu helst viljað láta ósvaraðar.

Valdís: öll þessi þögn er auðlesin og grípandi spennusaga um leyndarmál, þögn og það sem gerist þegar einhver ákveður loksins að spyrja.

Karfan þín

Valmynd