Úti við laugar

Skáldverk

Úti við laugar

eftir Sophie Daull

2021 · 163 bls.

Veldu snið

3.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Skáldkona kemur fram í sjónvarpi í tilefni af útkomu fyrstu bókar hennar. Andlit hennar á skjánum kemur manni nokkrum úr jafnvægi. Hann lifir fábreyttu lífi í bænum Nogent-le-Rotrou eftir að hafa afplánað fangelsisdóm fyrir glæp sem hann framdi fyrir þrjátíu árum. Nú þarf hann óvænt að horfast í augu við fortíð sína á ný. Skáldkonan er nefnilega dóttir fórnarlambs hans. Og hún er væntanleg til bæjarins að kynna bók sína …
Meistaralega vel ofin saga um tilfinningarót og eðli fyrirgefningar.

Sophie Daull býr í Montreuil í Frakklandi. Úti við laugar er þriðja skáldsaga hennar og hreppti meðal annars bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins árið 2019

Karfan þín

Valmynd