Um bókina
Þrúgur reiðinnar er frægasta verk Steinbecks og löngu orðið sígilt. Bókin kom út árið 1939. Baksvið sögunnar er kreppan í Bandaríkjunum á fjórða áratugnum. Heil bændasamfélög flosnuðu upp, ótal fjölskyldur brugðu búi og lögðu í óvissuför til fyrirheitna landsins, Kaliforníu. Í forgrunni sögunnar er einstæð mynd höfundar af kúgun og hatri, hugrekki og ást í skrautlegu mannlífi þessa tíma. John Steinbeck hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1962. Stefán Bjarman íslenskaði.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 26 klukkustundir og 19 mínútur að lengd. Arnar Jónsson les.













