Um bókina
Piet Hoffmann er á flótta umdan sænskum yfirvöldum og gerist flugumaður bandarískra stjórnvalda í kólumbísku kókaínmafíunni. Honum tekst að komast til metorða í hrottalegum heimi glæpamanna sem svífast einskis.
Þegar háttsettur bandarískur stjórnmálamaður er tekinn í gíslingu lendir Hoffmann milli steins og sleggju – báðir aðilar vilja hann feigan. Sænski lögreglumaðurinn Ewert Grens er sendur til Kólumbíu til að reyna að ná sambandi við Hoffmann sem hefur ákveðið að taka málin í sínar hendur.













