Þagnarbindindi

Skáldverk

Þagnarbindindi

eftir Lone Theils

2023 · 415 bls.

Veldu snið

3.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Blaðamaðurinn Nora Sand er komin til Tælands. Þar ætlar hún að æfa kickbox og fá smá hvíld frá vandamálunum heima fyrir. En þá hefur ritstjórinn hennar samband og vill senda hana til smábæjar á Englandi þar sem lögreglumaður hefur verið hálshöggvinn á hrottafenginn hátt. Myndbandsupptaka hefur verið birt á netinu og fólk er skelfingu lostið. En þegar Nora fer að rannsaka málið kemur í ljós að bæjarbúar eiga sér skuggalegt leyndarmál sem legið hefur í þagnargildi alltof lengi …
Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn víða um heim. Þagnarbindindi er fjórða bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar þrjár eru Stúlkurnar á Englandsferjunni, Kona bláa skáldsins og Nornadrengurinn.
Lone Theils var lengi fréttaritari dönsku blaðanna Politiken og Berlingske Tidende í London, en býr nú í Danmörku.

Karfan þín

Valmynd