Stormfuglar og Þung ský

Skáldverk

Stormfuglar og Þung ský

2025

Veldu snið

Um bókina

Stormfuglar og Þung ský eftir Einar Kárason á tveir fyrir einn!

Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl.

Á miðjum vetri heldur síðutogarinn Máfurinn á karfaveiðar vestur undir Nýfundnalandi. Um borð eru þrjátíu og tveir menn. Þeir fylla skipið í mokveiði en í þann mund sem þeir búast til heimferðar brestur á aftakaveður; sjórinn er drápskaldur og togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki.

Klakabrynjan er að sliga drekkhlaðið skipið, hver brotsjórinn af öðrum ríður yfir – og þarna úti á reginhafi eru mönnum allar bjargir bannaðar. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða.

 

Þung ský er kynngimögnuð saga um hrikalegt slys við ysta haf og örlagaríkan björgunarleiðangur.

Einkennilegur drengur á afskekktum bæ er gagntekinn af öllu sem flýgur; fyrst fuglum loftsins, síðan stálfuglunum stóru sem sjást æ oftar yfir heimaslóðum hans. Á þungbúnum vordegi sér hann hvar stór farþegaflugvél birtist út úr skýjaþykkni og fólkið í gluggunum veifar. Síðar sama dag fréttist að vélin sé týnd.

Bændur leggja af stað til leitar og drengurinn með. Í nálægum firði hefur sést brak utan í fjalli og leitarmenn halda upp bratta hlíðina, drengurinn fremstur. Það sem mætir skilningarvitum hans uppi á hjallabrún er ólýsanlegt. En þar logar eitt lítið lífsins ljós sem hann má ekki láta slökkna.

Karfan þín

Valmynd